Styrktu Jafnvægi, Hljóm & Orku Raddarinnar

Raddnámskeið fyrir jógakennara og alla þá sem vilja kynnast rödd sinni á nýjan hátt eða styrkja röddina sem atvinnutæki. Kennari Þórey Sigþórsdóttir

Skráning og nánari upplýsingar í síma 6991988 og hjá thorey@thoreysigthors.com

Röddin er vöðvi sálarinnar.

- Alfred Wolfsohn-

Að nálgast röddina sem hluta af heild 

Öndunin og rétt spennujafnvægi er undirstaða góðrar raddbeitingar. Til að tengjast rödd okkar á djúpan hátt er nauðsynlegt að líkamstengja röddina. Það fyrsta sem við gerum er að skapa meðvitund og hlustun í gegnum líkamann, opna og tengja öndun og síðan tengja okkur við rýmið og stækka innan frá og út. Finna og virkja hljómbotn raddarinnar og byggja upp úthald, styrk og hljóm.

Dönsum orkustöðvarnar 
Unnið með orkustöðvarnar og þær hreinsaðar í þeim tilgangi að styðja við röddina

Áhrif hugleiðslu á röddina
Fyrirstöður eru oft huglægar og hugleiðsla er magnað tæki til að umbreyta takmarkandi hugmyndum okkar um röddina.

Karl og Kvenorka Raddarinnar

Unnið með karl- og kvenorku raddarinnar til að opna inn í nýja staði í röddinni

Raddvernd

Farið í undirstöður í raddvernd og þá hluti í umhverfinu sem hafa áhrif á röddina

Uppgötvaðu styrk þinnar eigin raddar

Nálgun Nadine George Raddþjálfunar byggir á því að hver og einn hefur einstaka rödd og alltaf unnið út frá þeim stað sem hver og einn er á

Samtal um röddina sem atvinnutæki

Það er stórkostlegt að geta átt samtal um röddina í hóp sem kemur saman með sameiginlegt markmið og reynslu.

Helgarnámskeið
laugardag 19.2. kl. 13-17
og sunnudag 20.2. kl. 10.00 - 14.00
í Yogavin Grensásvegi 16, 108 Reykjavík
Skráning á thorey@thoreysigthors.com
Verð 39.000 kr

Til að staðfesta skráningu greiðir þú 5.000 kr og þá hefur þú tryggt þér pláss á námskeiðinu. Skráningargjaldið er óafturkræft.
Þátttökugjald greiðist að fullu í síðasta lagi mánudaginn 14.2.

Greiðsluupplýsingar fyrir millifærslu:
Mótttakandi:
Þórey Sigþórsdóttir kt. 251165-5569
Banki 0334 hb 26 reikn 22511
Mundu að senda kvittun á thorey@thoreysigthors.com

Að kynnast röddinni sinni er eins og að uppgötva sitt innra landslag.

- Þórey Sigþórsdóttir -

Þórey Sigþórsdóttir

hefur unnið sem leikari, leikstjóri og raddþjálfari frá því hún útskrifaðist sem leikkona frá Leiklistarsskóla Íslands 1991. Hún er viðurkenndur kennari „Nadine George Voice Work" aðferðinnar og er með Diploma í Kennsluréttindum frá Listaháskóla Íslands.
Þórey kennir m.a. við Kvikmyndaskóla Íslands, þar sem hún er fagstjóri í Leik og Rödd, hún reglulega við LHÍ; Sviðslistadeild og Listkennsludeild, auk þess býður Þórey upp á sérsniðin námskeið í fyrirlestratækni og ræðumennsku fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Þórey
stundar nú nám í "Shamanic Healing" hjá Patriciu Whitebuffalo, Walking the Wheel of Awakening og hefur þróað sína eigin nálgun í því að flétta aðferðir sjamanískar heilunar við raddþjálfunaraðferð NGVW.

Hvað segja þátttakendur

„Aukinn raddstyrkur, get beitt röddinni betur"

„Fyrir mig var þetta námskeið ótrúleg uppljómun"

„Ef ég hefði einhvern tíman verið nálægt því að geta flogið, þá var það í lok þessa námskeiðs" 

„Miklu betri og áheyranlegri"

„Mjög góð upplifun"

Ég vil skrá mig!

Verð 39.000 kr

Til að staðfesta skráningu greiðir þú 5.000 kr og þá hefur þú tryggt þér pláss á námskeiðinu.
Skráningargjaldið er óafturkræft.
Þátttökugjald greiðist að fullu í síðasta lagi 26.11.

Greiðsluupplýsingar fyrir millifærslu:
Mótttakandi:
Þórey Sigþórsdóttir kt. 251165-5569
Banki 0334 hb 26 reikn 22511
Mundu að senda kvittun á thorey@thoreysigthors.com