RÆKTAÐU RÖDDINA

Helgina 1.-3. maí 2026





Finndu öryggi í röddinni – og taktu pláss á þínum forsendum.

Röddin þín er þitt atvinnutæki.
Hvernig ertu að hugsa um hana?


Ef þú vinnur með fólk, kennir, leiðir eða stendur reglulega fyrir framan hóp – þá er röddin ekki aukahlutur.
Hún er grunnurinn.

Finnurðu stundum fyrir:

  • raddþreytu eftir daginn?
  • að þú þurfir að hækka röddina til að ná athygli?
  • að skilaboðin lendi ekki alltaf eins og þú vilt?
  • spennu í líkamanum áður en þú talar?
  • að þú haldir á köflum aftur af röddinni?

Ræktaðu Röddina er umbreytandi helgi þar sem þú:

  • styrkir röddina líkamlega og orkulega
  • losar spennu sem heldur aftur af tjáningunni
  • finnur jarðtengdan styrk og ró
  • lærir að halda rýminu án þess að ýta
  • finnur að þú mátt taka pláss

Þetta er ekki námskeið um að tala meira heldur að tala þannig að fólk hlusti.

Af hverju þetta námskeið – núna?

Vorjafndægur 20.–21. mars marka jafnvægi ljóss og myrkurs.
Eftir það fer birtan að taka yfir og nýtt vaxtarskeið hefst.

Apríl er því tími umbreytingar og nýrrar stefnu.

Þetta er góður tími til að:

  • staldra við
  • finna jafnvægi
  • styrkja röddina áður en álagið eykst

Þú þarft ekki að „fixa“ þig heldur færðu verkfæri til að styðja betur við það sem er þegar til staðar í þér.

Árangur byrjar með sterkri nærveru.
Góð raddbeiting styður við sterka nærveru og opnar leiðina að raunverulegum árangri í samskiptum, framsögu og lífi.

Snemmskráningu lýkur 10. apríl. Takmörkuð sæti.

Þetta segja þátttakendur sem nota röddina sem atvinnutæki:

„Allir sem nota röddina sem atvinnutæki daglega ættu að taka þetta námskeið. Það kenndi mér að nota röddina rétt.“
— Aðstoðarskólastjóri

„Á einni helgi náði ég ótrúlega miklum árangri sem er strax farinn að skila sér í betri samskiptum.“
— Verkefnastjóri

„Ég finn fyrir auknu frelsi í röddinni og meiri styrk.“
— Kennari

Er þetta að kalla á þig?

Ef röddin er hluti af starfinu þínu – og þú vilt treysta henni betur.

Ef þú finnur að þú heldur stundum aftur af þér, þrátt fyrir að þú eigir meira inni.

Ef þú vilt upplifa öryggi í líkamanum þegar þú talar – ekki spennu.

Ef þú ert tilbúin að taka pláss á þínum forsendum.

Þá er þetta skrefið.

Skráðu þig og leggðu grunn að því að:

  • styrkja samskiptafærni þína
  • minnka spennu og framkomukvíða
  • auka nærveru og kjark til að láta í þér heyra
  • treysta röddinni sem atvinnutæki
  • tala þannig að fólk hlusti
Já ég er með!

ÖRYGGI - Í STAÐ KVÍÐA

Raddþjálfun er ein áhrifaríkasta leiðin til að vinna gegn ótta við að tala fyrir framan fólk.

Við vinnum með:

  • líkamsbeitingu og öndun
  • spennu og taugakerfi
  • hugsanir og tilfinningar sem hafa áhrif á röddina

Þegar öryggi eykst minnkar kvíðinn – og röddin fær að flæða frjálsar.

STERK NÆRVERA – FÓLK HLUSTAR

Góð raddbeiting skapar góða nærveru.

Sterk nærvera:

  • vekur athygli án þess að þú þurfir að hækka röddina
  • styrkir samskipti og skapar traust
  • hjálpar þér að halda rýminu með ró og öryggi

Þú þarft ekki að tala hærra.
Heldur að tala þannig að fólk hlusti.

SKÝR RÖDD – SKÝR SKILABOÐ

Skýr raddbeiting og virk hlustun skapa skýrari samskipti.

Þegar röddin er í jafnvægi:

  • dregur úr misskilningi
  • minnkar pirring og óöryggi
  • bætir samskipti í starfi og einkalífi

Skýr rödd styður skýr skilaboð – og skýr skilaboð skapa áhrif.

Það sem þú færð

01

Öndunaræfingar

Djúp og meðvituð öndun er grunnur að góðri raddbeitingu.

Þú lærir að:

  • finna rétt spennujafnvægi í líkamanum
  • róa taugakerfið
  • losa streitu sem hefur áhrif á röddina

Margir upplifa jafnframt:

  • betri svefn
  • meiri ró
  • minni spennu og verki

02

Raddæfingar

Við vinnum markvisst með raddsvið og orkuna í röddinni, meðal annars við píanóið.

Með Nadine George Voice Work lærirðu að:

  • líkamstengja röddina
  • auka úthald og styrk
  • stækka aðgengilegt raddsvið

Röddin verður ríkari, stöðugri og öruggari.

03

Rýmisæfingar

Rödd og nærvera fara saman.

Í rýmisæfingum lærirðu að:

  • skerpa fókus
  • tengja líkama og rödd í hreyfingu
  • stækka nærveru þína í rýminu

Þær styðja þig í að taka rýmið þegar þú þarft að tala fyrir framan fólk.

04

Textaæfingar

Æfingar sem tengja opnun í öndun og rödd yfir í textaflutning og daglegt tal

Þú lærir að

  • þekkja röddina þína
  • stilla styrk eftir aðstæðum
  • tala bæði kraftmikið og lágstemmt – af öryggi

05

Traust rödd = Gott sjálfstraust

Þegar röddin verður traust breytist eitthvað dýpra.

Þessi raddþjálfun:

  • breytir raddvitund til framtíðar
  • styrkir sjálfstraust
  • styður þig í bæði faglegum og persónulegum aðstæðum

Röddin er atvinnutæki – en hún er líka hluti af sjálfsmynd þinni.

FAQ – Algengar spurningar

1) Fyrir hvern er Ræktaðu Röddina?
Námskeiðið er fyrir þig ef þú notar röddina í starfi eða lífi, t.d. í kennslu, leiðtogahlutverki, samskiptum, framsögu eða þegar þú stendur fyrir framan hóp. Það hentar líka vel skapandi fólki (leikarar, leikstjórar, tónlistarfólk) sem vill dýpka tenginguna við röddina.

2) Þarf ég að hafa reynslu af raddþjálfun?
Nei. Þú þarft ekki að kunna neitt fyrir. Við byrjum þar sem þú ert og byggjum upp skref fyrir skref.

3) Finnurðu fyrir stressi þegar þú talar fyrir framan hóp – og veltir fyrir þér hvort þetta sé samt fyrir þig?
Já. Við vinnum í öruggu og nærandi rými. Markmiðið er ekki að “ýta þér út”, heldur að þú finnir öryggi og styrk til að taka pláss á þínum forsendum.

4) Verður þetta “performance” eða þarf ég að syngja?
Nei. Þetta er ekki sýning og þú þarft ekki að syngja. Við notum rödd, öndun og æfingar til að opna raddsvið og styrkja raddbeitingu — á öruggan og aðgengilegan hátt.

5) Hvað ef ég er hás eða finn oft fyrir raddþreytu?
Þá getur námskeiðið verið sérstaklega gagnlegt. Við vinnum með öndun, líkama, spennujafnvægi og raddbeitingu sem styður röddina. (Ef þú ert með alvarleg einkenni eða ert í læknismeðferð er alltaf gott að fylgja ráðleggingum heilbrigðisstarfsfólks líka.)

6) Hvað fæ ég nákvæmlega út úr helginni?
Þú færð æfingar og aðferðir til að styðja röddina, losa spennu og tala með meiri nærveru. Flestir fara heim með meiri tengingu við röddina og skýrari leið til að nota hana í daglegu lífi og starfi.

7) Hvað ef ég missi af hluta?
Best er að vera allan tímann, því ferlið byggist upp yfir helgina. Ef eitthvað óvænt kemur upp, sendu mér línu og við finnum bestu lausn.

8) Get ég fengið styrk frá stéttarfélagi?
Oft já. Stéttarfélög styrkja þetta námskeið gjarnan. Athugaðu rétt þinn hjá þínu félagi.

9) Hvernig gengur skráning og greiðsla?
Til að tryggja þér pláss greiðir þú 10.000 kr staðfestingargjald. Upphæðin dregst frá heildarverði og restin greiðist áður en námskeiðið hefst.

10) Get ég haft samband ef ég er óviss?
Já, endilega.
📧 thorey@thoreysigthors.com

Snemmskráning til 10. apríl. Takmörkuð sæti.

Þetta er helgi sem leggur grunn að varanlegri breytingu
í rödd, nærveru og sjálfstrausti.

Með þátttöku í þessu námskeiði fundu margir ró í röddinni og meiri nærveru í framkomu.

Fjárfesting í röddinni þinni

Röddin er atvinnutæki.
En hún er líka hluti af sjálfsmynd þinni.

Þessi helgi er fjárfesting í öryggi, nærveru og varanlegri raddvitund.

Snemmskráningarverð – Early Bird

77.000 kr
Snemmskráningarverð sparar þér 11.000 kr – gildir til 10. apríl 2026.
Eftir það tekur fullt verð við.

Fullt verð

88.000 kr

Staðfesting skráningar

Til að tryggja þér pláss greiðir þú 10.000 kr staðfestingargjald.
Það dregst frá heildarupphæð.

Skráningargjaldið er óafturkræft nema námskeiðið verði ekki haldið.

Heildarfjárfesting greiðist að fullu áður en námskeiðið hefst.

Styrkir

Stéttarfélög styrkja þetta námskeið oft.
Kannaðu rétt þinn hjá þínu félagi.

👉 Veldu viðeigandi greiðsluleið hér að neðan.
Mundu að skrá greiðanda, nafn og netfang.

Snemmskráningu lýkur 10. apríl. Takmörkuð sæti.
Flestir tryggja sér sæti áður en fullt verð tekur gildi.

GREIÐSLUKORT


Ræktaðu Röddina hefur verið haldið reglulega við frábærar viðtökur.

Þátttakendur upplifa oft:

  • meira öryggi í framkomu
  • aukinn raddstyrk og úthald
  • betri tengingu við eigin rödd
  • meiri ró í líkamanum
  • skýrari tjáningu

Umbreytingin í þeirra orðum:

„Valdeflandi námskeið sem fyllir mann af sjálfstrausti og hugrekki!“
— Make-up artist

„Ef ég hefði einhvern tíma verið nálægt því að geta flogið, þá var það í lok þessa námskeiðs.“
— Ráðgjafi

„Frábær leið til að læra á röddina, fá hjálp við að styrkja hana og um leið til sjálfstyrkingar.“
— Tónlistarkona

Þessar sögur sýna að þátttakendur upplifa raunverulega breytingu í bæði líkamlegri ró, öryggi og tjáningu. Námskeiðið er kennt í litlum hóp þar sem hver og einn fær persónulegan stuðning og skýra leiðsögn.

Tímasetning

Föstudagur 1. maí kl. 17:00–21:00
Laugardagur 2. maí kl. 10:30–15:30
Sunnudagur 3. maí kl. 10:30–15:30

Alls 14 klukkustundir.

Staðsetning

Rafmennt, Stórhöfða 27, 110 Reykjavík.

Innifalið í námskeiðsgjaldi

  • námskeiðsgögn
  • staðfestingarskjal
  • létt hressing í pásum

Þetta námskeið er fyrir þig ef þú:

  • vilt styrkja samskipti og framkomu
  • hefur atvinnu af því að nota röddina
  • vilt meira sjálfstraust og sterka nærveru
  • ert tilbúin að vinna með líkama og rödd saman
  • vilt taka pláss á þínum forsendum

Að þjálfa röddina er eins og að þjálfa „vöðva sálarinnar“.

Þetta námskeið er ekki fyrir þig ef þú:

  • hefur ekki áhuga á að þróa röddina þína
  • vilt ekki stíga út fyrir þægindarammann núna
  • ert ekki tilbúin að gefa þér pláss í lífi og starfi

Til að skrá þig og greiða ýttu á viðeigandi takka!

Hæ, ég er Þórey.

Ég hef starfað sjálfstætt sem leikkona, leikstjóri og radd- og leiklistarkennari frá 1991.

Í meira en þrjá áratugi hef ég unnið með rödd, nærveru og tjáningu – bæði á sviði og í kennslu. Ég hef séð aftur og aftur hvernig röddin speglar sjálfsmyndina okkar. Röddin er atvinnutæki fyrir marga – en hún er líka hluti af því hver við erum. Og ég hef séð hvað gerist þegar við tengjumst henni á nýjan hátt.

Röddin er ekki bara hljóð.

Hún er hvernig þú tekur pláss.
Hún er
hvernig á þig er hlustað.
Hún er
hvernig þú stendur með sjálfri þér.

Þegar ég tengdist minni rödd á dýpri hátt upplifði ég raunverulegt sjálfsöryggi – ekki bara sem leikkona, heldur sem manneskja. Því frelsi vil ég miðla áfram.

Öryggi er grunnurinn.

Að opna röddina á nýjan hátt getur verið viðkvæmt.

Kannski hefur þú vanið þig á að smækka þig.
Kannski hefur spennan tekið yfir þegar þú talar.
Kannski hefurðu efast um styrk raddarinnar – þrátt fyrir að röddin sé atvinnutæki í þínu starfi.

Í nálgun minni skapa ég öruggt og traust rými þar sem þú mátt:

  • prófa nýjar leiðir
  • sleppa spennu
  • opna röddina án þess að vera dæmd og finna að þú mátt „taka pláss"

Þú þarft ekki að verða önnur manneskja.
Við tengjum við það sem er þegar til staðar í þér.

Fagleg dýpt og skýr aðferð

Með yfir 30 ára reynslu sem leikkona, leikstjóri og kennari styð ég þig með skýrri, einfaldri og djúpri aðferð sem heldur utan um ferlið frá upphafi til enda.

Ég hef kennt meðal annars við:

  • Listaháskóla Íslands Sviðslistadeild
  • Listaháskóla Íslands Listkennsludeild
  • Kvikmyndaskóla Íslands
  • Háskóla Íslands
  • Háskólann í Reykjavík

Ég er viðurkenndur kennari í Nadine George Voice Work og hef lokið meistaranámi í leikhúsfræðum og menningarmiðlun, auk þjálfunar í markþjálfun og sjálfsþróun.
Þú ert því í öruggum höndum – bæði faglega og mannlega.

Ef þú finnur að þetta á við þig

Ef röddin er hluti af starfinu þínu. Ef þú finnur að þú heldur stundum aftur af henni. Ef þú veist að þú átt meira inni.

Þá býð ég þér að stíga inn í öruggt rými þar sem þú getur endurheimt tenginguna við röddina og fundið styrkinn til að taka pláss.
Röddin er atvinnutæki – og þú átt rétt á að treysta henni.

Snemmskráning lýkur 10. mars. Takmörkuð sæti.

Skráning

Til að tryggja þér pláss greiðir þú 10.000 kr staðfestingargjald.
Upphæðin dregst frá heildarverði og restin greiðist áður en námskeiðið hefst.

Snemmskráningarverð sparar þér 11.000 kr
– gildir til 10. apríl 2026.

Flestir tryggja sér sæti áður en fullt verð tekur gildi.

Ef þú hefur spurningar er þér velkomið að hafa samband:
📧 thorey@thoreysigthors.com

Ef þetta er að kalla á þig, þá er þetta skrefið.

👉 Ég er með!

GREIÐSLUKORT