RÆKTAÐU RÖDDINA
Sjálfstyrkingarnámskeið




Viltu ná árangri í lífi og starfi?

Það eru margir sem taka röddinni sem sjálfsögðum hlut og átta sig ekki á þeim möguleikum sem þetta stórkostlega fyrirbæri RÖDDIN hefur í samskiptum í lífi og starfi. Þetta skiptir auðvitað sköpum þegar röddin er ATVINNUTÆKIÐ sem þú treystir á.

Engar áhyggjur
Hjálpin er á leiðinni!

RÆKTAÐU RÖDDINA
ER NÁMSKEIÐIÐ FYRIR ÞIG

Skráðu þig og legðu grunn að því að auka samskiptafærni þína og verða frábær fyrirlesari

JÁ ég vil skrá mig !

FRAMMISTÖÐU
KVÍÐI

Raddþjálfun er ein besta leiðin til að vinna á móti ótta við það að tala fyrir framan fólk þar sem hún fer inn á bæði huglæga og líkamlega þætti varðandi röddina.

STYRK NÆRVERA

Góð raddbeiting skapar góða nærveru. Góð nærvera styrkir samskipti og fær fólk til að hlusta og vinna með þér.

SKÝR SAMSKIPTI

Skýr raddbeiting og hlustun hjálpar samskiptum og minnkar líkurnar á óþarfa misskilningi og pirringi í lífi og starfi.

Það sem þú færð

01

Öndunaræfingar

Grunnur fyrir góða raddbeitingu er djúpöndun, það eru ýmis jákvæð aukaáhrif af því að læra góða öndunartækni og djúpöndun er lykilatriði í því að ná réttu spennujafnvægi og læra að losa sig við streitu.

Óteljandi rannsóknir hafa sýnt fram á það hversu jákvæð áhrif djúpöndun hefur á líf okkar. Fólk upplifir að það á auðveldara með svefn, finnur aukna ró og verkir vegna spennu í líkamanum hverfa þegar hún losnar.

02

Raddæfingar

Við vinnum með karl- og kvenorku raddarinnar við píanóið og opnum fyrir stærra svið í röddinni en við notum dags daglega.

Þessi aðferð "
Nadine George Voice Work" er frábær leið til að líkamstengja röddina og auka úthald og styrk raddarinnar ásamt því að stækka aðgengilegt svið hennar.

03

Rýmisæfingar

Æfingar til að skerpa á fókus og tengja líkama og rödd í hreyfingu. Þessar æfingar hreinlega stækka nærveru þína (presence) og hjálpa þér að "„taka rýmið" þegar þú þarft að tala fyrir framan fólk.

04

Textaæfingar

Þessar æfingar hjálpa þér að tengja opnunina sem gerist í raddæfingum og öndun yfir í það að beita þér í textaflutningi og almennu tali.

Þær hjálpa þér að læra að þekkja röddina og vega og meta hvað styrk þú þarft við hvaða aðstæður svo röddin hljómi og berist. Hvort sem það er með miklum styrk eða á lágstemmdari nótum.

05

Traust rödd = Gott sjálfstraust

Raddþjálfunaraðferð Nadine George er sérlega áhrifamikil, stækkar og opnar röddina og breytir raddvitund þinni og tækni til framtíðar.

Þetta er raddþjálfun sem stendur sterk með þér áfram hvort sem þú þarft að halda fyrirlestur eða eiga viðkvæm samskipti í vinnu eða einkalífi.

HVAÐ GERI ÉG ?

Til að staðfesta skráningu greiðir þú 10.000 kr
þá hefur þú tryggt þér pláss á námskeiðinu sem þú hefur í huga.
Skráningargjaldið er óafturkræft, nema námskeiðið verði ekki haldið.


Heildar fjárfestingin er 85.000 kr
Námskeiðið þarf að greiða að fullu áður en námskeið hefst 12.mars

Ath. Stéttarfélög styrkja þetta námskeið yfirleitt, tékkaðu endilega á þínu!
Hver réttur þinn er.

ATH. Snemmskráningar verð kr. 75.000
Eingreiðsla, gildir til 25.04.2024 eða út Sumardaginn fyrsta.
Kannski Sumargjöfin þín til þín í ár!

Til að skrá þig og greiða ýttu á viðeigandi takka!
Ef þú hefur einhverjar spurningar geturðu sent mér fyrirspurn á thorey@thoreysigthors.com

GREIÐSLUKORT


RÆKTAÐU RÖDDINA hefur verið haldið reglulega við frábærar viðtökur

Eftir námskeiðið eiga þátttakendur auðveldara með að standa upp og
standa fyrir máli sínu fyrir framan hóp og hafa lært æfingar til að
vinna gegn almennri streitu og framkomufælni.

Margir sem hafa fundið fyrir lokun í hálsstöðinni (5. orkustöðinni) finna hana opnast og um leið frelsið sem það skapar fyrir tjáningu og hvernig það styrkir samskiptafærni þeirra.

Þátttakendur sögðu um námskeiðið:

  • „Aukinn raddstyrkur, get beitt röddinni betur"
  • „Miklu betri og áheyranlegri"
  • „Mjög góð upplifun"
  • „Fyrir mig var þetta námskeið ótrúleg uppljómun"
  • „Ef ég hefði einhvern tíman verið nálægt því að geta flogið, þá var það í lok þessa námskeiðs" 

Námskeiðið er kennt í litlum hóp og
hver einn einn fær mikinn persónulegan stuðning.

Það er um að gera að vera fljótur að ákveða sig, fyrstur kemur fyrstur fær!
Síðast komust færri að en vildu.



Tímasetning

1. Þriðjudagur 21.maí kl. 17.30 - 21
2. Miðvikudagur 22. maí kl. 17.30 - 21
3.
Þriðjudagur 28. maí kl. 17.30 - 21
4.
Miðvikudagur 29. maí kl. 17.30 - 21


3,5 klst í senn með pásu og hressingu


Þín fjárfesting 85.000 kr

eða 75.000 kr
ef þú nýtir þér snemmskráningargjaldið og skráir þig strax!
Gildir út
Sumardaginn fyrsta eða 25.apríl 2024


Innifalið í námskeiðsgjaldi eru námskeiðsgögn, staðfestingarskjal og hressing á námskeiði.

Námskeiðið fer fram í húsnæði Kvikmyndaskóla Íslands,
Suðurlandsbraut 18, 108 Rvk.

Þetta námskeið er fyrir þig ef þú
~vilt styrkja þig í samskiptum og fyrirlestratækni

~hefur atvinnu af röddinni þinni og þarft að treysta á hana

~vilt öðlast meira sjálfstraust og hafa sterka rödd í hlutverkum þínum

Að þjálfa röddina er eins og að þjálfa „Vöðva sálarinnar" og er ein áhrifaríkasta aðferðin til að byggja upp raunverulegt sjálfstraust.

Þetta námskeið er ekki fyrir þig ef þú

~vilt ekki styrkja rödd þína

~ert ekki tilbúin að fara út fyrir þægindarammann

~vilt ekki fjárfesta í sjálfri þér og samskiptafærni þinni

Til að skrá þig og greiða ýttu á viðeigandi takka!

Hæ ég er Þórey

Ég hef starfað sjálfstætt sem leikkona, leikstjóri og radd/leiklistarkennari frá því ég útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands ársið 1991

Ég kenni reglulega við Kvikmyndaskóla Íslands, þar sem ég er fagstjóri í Leik og Rödd, Listaháskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.

Auk þess held ég reglulega sérsniðin námskeið í fyrirlestratækni og öruggri framkomu með sérstakri áherslu á röddina, fyrir fyrirtæki og einstaklinga.

Ég elska það að vinna með röddina í allri mannlegri stærð hennar, líkamstengja hana og leyfa henni að opna inn í öll okkar tilfinningasvæði. Heimsækja öll „ljótu hljóðin" líka án þess að dæma. Röddin er svo persónulegur hlutur og svo tengdur sjálfsmynd okkar. Röddin endurspeglar allt sem við höfum gengið í gegnum. Ég upplifði það að öðlast raunverulegt sjálfsöryggi þegar ég fór að tengja við röddina í mér á alveg nýjan hátt. Það er ástæðan fyrir því að ég er að kenna þetta. Mig langaði til að aðrir fengju að upplifa þetta frelsi sem ég upplifði við að stækka innan frá í gegnum röddina.

Menntun
Leikkona frá Leiklistarskóla Íslands 1991
Leiðsögumaður frá Leiðsöguskóla Íslands 2000
Viðurkenndur kennari „Nadine George Voice Work
" aðferðinnar 2002
Diploma í Kennsluréttindum frá Listaháskóla Íslands 2004

MA í Advanced Theatre Practice frá The Royal Central School of Speech and Drama í London 2012

MA í Hagnýtri Menningarmiðlun frá Háskóla Íslands 2014
Sjamanískur heilari, Patriciu Whitebuffalo, "Walking the Shaman's Path" 2022

Ég mun skapa traust, nærandi og hvetjandi námsumhverfi
þar sem hver og einn fær notið sín!

Til að staðfesta skráningu á námskeiðið RÆKTAÐU RÖDDINA greiðir þú 10.000 kr og þá hefur þú tryggt þér pláss á námskeiðinu.

Skráningargjaldið er óafturkræft. Restin af þátttökugjaldi greiðist að fullu fyrir námskeið eða í síðasta lagi mánudaginn 20.maí

Ef þú hefur lesið alla leið hingað er greinilegt að hér er eitthvað sem þú tengir við eða kallar á þig. Ég hvet þig til að nýta þér Snemmskráningargjaldið - Early Bird-

Þú sparar 10.000 kr á heildarverðinu.
Gildir út Sumardaginn fyrsta eða 25.apríl 2024

Til að skrá þig og greiða með greiðslukorti ýttu á greiðsluhnappinn fyrir neðan.
Ef þú hefur einhverjar spurningar hafðu samband á thorey@thoreysigthors.com

JÁ ég vil skrá mig!